Nafnrúnir og ættarmerki
Verð 1.500,00 kr

Búmerki eða Nafnrúnir voru áður fyrr notuð sem merki búsins og voru oftast samsett úr rúnum og þá upphafsstöfum td. bóndans eða hjónanna. Ýmis tákn voru einnig fléttuð inn í þau svo sem fuglsfætur, grös, stjörnur, blóm, fjaðrir, skeifa eða önnur slík einföld merki, nokkurs konar myndletur. Búmerkin þróuðust síðar í svokallaða galdrastafi sem tóku á sig hin undarlegustu form.

Búmerkin voru skorin í áhöld bæjarins eins og hrífur, kistla, höldur, eldhúsáhöld og fleirra
. Einnig var það til að konur saumuðu þessi merki í flíkur og annað lín sem tilheyrði heimilinu.

Nafnrúnir og ættarmerki
1 2