Um okkur

Víkingahringurinn

Víkingahringurinn er vörumerki Víkingahringsins ehf. Starfsemi félagsins byggir á hugmyndum Hauks Halldórssonar myndlistamanns og Sverris Arnar Sigurjónssonar, viðskiptafræðings, hvernig starfrækja á fyrirtæki sem byggir starfsemi sína á forni norður evrópskri menningu. Hugmyndafræðin að baki þessarar viðskiptahugmyndar eru hinar fornu norrænu sögur, listmunir og aðrir fornmunir sem fyrir hendi eru hér á landi og erlendis. Eftir tveggja áratuga athuganir og ferðir um flest lönd Evrópu og Norður Ameríku til að kynnast listum og sögu þessara þjóða, var ljóst að mikil verðmæti væru fyrir hendi í hinni sameginlegu menningu.

Kannað var hvernig virkja mætti þennan áhuga fólks til ávinnings hér á landi og erlendis. Niðurstaðan var sú að vænlegast væri að nýta myndræna framsetningu í tengslum við sögulega þekkingu á norrænni goðafræði. Norræn goðafræði er í raun norður evrópsk trúarbragðafræði. Sköpunarsaga heimsins rakin í Snorra Eddu, að öðrum fornum ritum ólöstuðum, er megin heimild okkar um hvernig forfeður okkar hugsuðu og útskýrðu lífið og náttúruöflin. Niðurstaða okkar er sú að skapa þyrfti viðeigandi umgjörð eða segul til að fá áhugasama gesti til að standa undir kostnaði við verkefni þetta.

Lista- og fræðslumiðstöð sem sérhæfir sig í áður nefndu efni er að Straumi við Straumsvík í Hafnarfirði. Hefur hún hlotið nafnið Víkingahringurinn. Þar er boðið upp á hinar ýmsu kynningar á forni norður evrópskri menningu og myndlist sem tengist starfsemi félagsins. Húsnæðið hýsir einnig aðra starfsemi félagsins svo sem hönnun og framleiðsludeild

Þemagarðar

Reisa þarf þemagarð þar sem gestir fá að sjá og taka þátt í þeirri veröld sem þeir eru að heimsækja. Sérstakt umhverfi sem drægi fólk á staðinn, eitthvað sem hvergi væri til annarstaðar í veröldinni.

Undanfarin ár hefur verið unnið sleitulaust að því að skapa viðeigandi sögusvið sem hlotið hefur heitið Sagnagarðurinn með umgjörð, persónum og munum, sem tilheyra þessari viðskiptahugmynd.

Áhersla er lögð á skemmtun og fræðslu sem tengist viðkomandi umhverfi. Í tengslum við viðkomandi þema yrðu síðan hannaðar og framleiddar vörur og komið yrði á fót þjónustu, sem tengjast viðkomandi sögusviði. Myndir og munir hafa verið gerðir og kannað hvort áhugi sé fyrir hendi hjá fólki og hvernig það bregst við.

Heimskautsgerði á Raufarhöfn er að rísa. Byggir það á göngu sólar og samspili ljóss og skugga í tengslum við árstíðirnar og þá vætti sem tengjast þeim. Vættirnir í þesssu tilfelli eru dvergarnir, þeirra er getið í fyrri hluta Völuspár og eru þeir 72 að tölu. Unnið hefur verið að því nú að skapa hvern dverg með tilheyrandi einkennum. Hér má geta þess að hönnun á fatnaði og listmunum sem þeir bera eru nú þegar á frumstigi.

Útgáfustarfsemi

Myndskreyttar bækur með lýsingu á helstu persónum goðafræðinnar eru vel á veg komnar. Verða þær gefnar út á helstu tungumálum ferðamanna hér á landi í meðfærulegu bandi. Þar er fjallað um hvern heim goðafræðinnar en þeir eru sem hér segir: Ásgarður, Álfheimar, Dvergheimar, Hel, Jötunheimar, Miðgarður, Múspellsheimar, Niflheimar og Svartálfheimar.

Fyrsta bókin af þremum um fyrgreint efni er nú þegar fyrirliggjandi á íslensku, dönsku og ensku. Fjallar hún um álfa, æsi og menn.

Þá er komin úr prentun bók um galdartákn og íslensk búmerki.

Skrautprentaðar víkingaspár sem byggja á trú og táknum sem tengd eru goðafræði eru nú þegar fullbúnar og fyrirliggjandi á íslensku, dönsku, ensku, þýsku og rússnesku. Gerðar hafa verið nokkrar markaðstilraunir með víkingaspárnar með mjög góðum árangri.

Myndir af dvergunum 72 úr völuspá eru nú þegar fyrirliggjandi til prentunar. Verða þeir skrautprentaðir þar sem fram kemur hlutverk þeirra og mikilvægi fyrir allt líf hér á jörðinni. Dvergarnir stjórna öllum gróðri og eru því í raun hluti af undirstöðu alls lífs hér á jörðu.

Myndlist og saga

Öll myndlist er unnin með bestu fáanlegri rafrænni grafík tækni og prentuð með hágæða “pigment” prentun, en það er besta listaverkaprentun sem fyrirfinnst og notuð af virtustu listasöfnum í dag. Hægt er að bjóða útprentanir hvort sem er á styrktan bómullar canvas eða sérvalin pappír eftir því sem hentar hverju sinni.

Nú þegar eru tilbúnar myndir og myndaseríur sem byggja á Snorra Eddu. Hér má t.d. nefna myndaseríu sem byggir á Þrymskviðu. Þar er ferð Þórs og Loka til jötunsins Þryms til að endurheimta hamarinn Mjölni færð í myndmál með einstökum hætti. Þá má geta þess að fjöldinn allur af öðrum verkum tengdum hinum ýmsu verum goðafræðinnar eru tilbúin til prentunar.

Vinnsla á galdrarúnum þeim sem þekktar voru hér á landi er á lokið. Rúnirnar eru sýndar í listrænni framsetningu og ætlaðar til prentunar með sömu tækni og hér að framan greinir.

Næstu skref í starfsemi félagsins

Félagið er nú á ákveðnum tímamótum, kynning á starfsemi félagsins með markvissum hætti er næsta skref. Huga þarf að markaðsetningu og vexti.

Núverandi húsnæði félagsins er glæsilegt, þar sem hægt að halda sýningar og taka á móti hópum,sem hafa áhuga að kynna sér menningu forfeðra okkar. Aðstaða til fræðslu nemenda skóla jafnt sem fullorðinna með fundaraðstöðu og sýningsal er til staðar.

Mikilvægt er að vekja meiri áhuga fólks á þessum dýrgrip sem hin forna menning forfeðra okkar er.

Hér hefur einungis verið drepið á því helsta sem Víkingahringurinn fæst við, en ljóst er að verkefnin eru bæði stór og margvísleg og þá hvort sem notaður er innlendur eða erlendur mælikvarði.