Í þessari bók er sagt frá Álfheimum, Ásgarði og Miðgarði eins og best og næst verður komist þeim hugmyndum er heiðnir menn gerðu sér um þessa staði.
Hvaðan komu Álfar? Hvernig tengdust þeir Ásgarði? Mikil trú var á þessum verum fyrr á tímum. Margar sagnir eru af álfum og dísablótum, sérstaklega frá Svíþjóð og Norður-Englandi.
Hér er sagt frá helstu goðum og gyðjum og hvernig sköpun mannsins var háttað og komu hans til þess lands sem kallað er Miðgarður