Galdranámskeið
Verð 4.900,00 kr

Á Íslandi hafa verið stundaðir galdrar alla tíð frá landnámi. Seiðmenn skáru níð-rúnir til að ná sér niður á fjandmönnum sínum. Bændur blótuðu guðunum til dýrðar og notuðu náttúrugaldra til að blessa engin til að tryggja sér góða uppskeru. Húsfreyjur notuðu húsgaldra til að halda illum öndum frá heimilinu og tryggja fjölskyldumeðlimum langlífi.

Listamiðstöðin í Straumi í Straumsvík stendur nú fyrir galdranámskeiðum þar sem farið verður yfir íslenska galdra, galdratákn og notkun galdra kennd í daglegu lífi.

Bókin GALDUR OG ÆTTARMERKI verður boðin til söl á sérstöku tilboðsverði til þátttakanda. Í henni er yfirgripsmikið safn íslenskra galdra og galdrastafa.

Námskeiðin eru haldin á laugardögum milli kl 14 og 16. Athugið að fjöldi þáttakenda er takmarkaður á hverju námsskeiði. Vinsamlegast takið með ykkur ritföng.

Næsta námskeið 6.desember.

Lærðu rétta notkun galdra og skráðu þig strax í dag.

Galdranámskeið
1 2