Ekki er vitað um uppruna málrúna en í gömlum “galdraskræðum” (handritum) er minnst á þessar rúnir. Þar eru þær tengdar tímatali, viðburðum í árinu og jafnvel ýmsum merkjum sem segja til um hvenær fara skal til fiskja, sá í akra, uppskera og margt fleirra.
Rúnir þessar gætu verið sambærilegar við Tarot eins og það er kallað í dag. Tarot spilin eru sögð eiga uppruna sinn í Egyptalandi, Babilon eða jafnvel hjá hofprestum sem notuðu ýmis tákn til að geta sagt fyrir um væntanlega atburði eins og stríð, flóð, uppskeru og annað slíkt.
Franskur sirkusmaður og farandsali er talin hafa búið til upprunalegu Tarotspilin eins og þau eru í dag.
Tarot er upphafið að venjulegum spilum eins og við þekkjum þau í dag. Hjarta, spaði, tígull, lauf og svo frv.